Það eru aldeilis fréttir sem maður horfir á núna í morgunsárið,
svona rétt þegar maður er að vakna eftir væran nætursvefn.
Kolbeinsey er að brotna niður meir og meir. Þyrlupallurinn sem ég
tók þátt í að steypa upp sumarið 1989 er brotin og ekki verður lent
á honum meira. Er þá ekki við hæfi að rifja þetta aðeins upp.

Svona leit Kolbeinsey út áður en framkvæmdir hófust 1989.

Uppsláttur í fullum gangi 1989.

Uppslátturinn langt kominn 1989

Langt komið að steypa, takið eftir stærðini hægt var að fara á
afvikin stað til að pissa og ennþá er gróður í eyjunni 1989.

Steypuvinna í Kolbeynsey á Óðni 1989

Þyrlupallurinn tilbúinn 1989

Kolbeinsey mæld upp árið 2001

Gefur hressilega yfir Kolbeinsey 2001

Kolbeinsey heimsótt 2004 ekki viðraði til landtöku í þetta
skiptið

Ingvi, Guðmundur, Ásmundur og Rafn Hásetar á Varðskipinu Ægi með
Kolbeinsey í bakgrunn árið 2004

Svona mun þetta víst líta út núna. Mynd fengin af heimasíðu LHG
tekin af Páli Geirdal