Höfundarréttur
Af gefnu tilefni þykir
rétt að taka það fram
að allar myndir sem
birtar eru á þessari
síðu eru eign höfundar
nema annað sé tekið
fram í myndtexta.
Ég óska eftir að
höfundarréttur minn
sé virtur. Hægt er að hafa
samband við mig sé
áhugi fyrir því að nota
mynd eftir mig annarstaðar.
Dagsetning
9. febrúar 2010
Klukkan
Skjaldarmerkið
http://img222.imageshack.us/img222/3280/skjaldarmerki7if.jpg
 Skjaldberar eru hinar fjórar
   landvættir,
sem getur í
  Heimskringlu: griðungur,
 hægra megin skjaldarins,
  bergrisi, vinstra megin,
  gammur,
hægra megin,
   ofan við griðunginn,
 og dreki, vinstra megin,
   ofan við bergrisann.
Kallinn
http://img151.imageshack.us/img151/4164/img9957abya8.jpg""
05.02.2010 19:40:46 / pardus

Að styrkja gott málefni, veitir vellíðan.

Ég fæ ekkert endilega allan minn póst strax í hendurnar um leið og hann berst, eðli málsins samkvæmt vinnu minnar vegna. Þannig var að ég var að fá fyrir skemmstu smá pakka sem ég hlakka alltaf til að fá í byrjun hvers árs. En þannig er að Knattspyrnufélagið Ægir í Þorlákshöfn gefur út dagatal með skipamyndum þeirra báta sem gerðir eru þaðan út, til styrktar barna og unglingastarfi félagsins. Svolítið er síðan haft var samband við mig og mér boðið að vera þáttakandi í þessu. Sem ég að sjálfsögðu samþykkti, enda bara gaman að því að geta notað áhugamál sitt til að leggja góðu málefni lið. Í seinni tíð er ég farinn að haga myndatökum mínum af þessum bátum með þetta í huga, verði því viðkomið.



Ekki skemmir svo nafn félagsinns fyrir stemmninguni við þetta.



Í ár átti ég sex myndir af tólf í þessu dagatali og er bara mjög stoltur af því.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.02.2010 01:18:32 / pardus

237 Fjölnir SU-57

Menn voru ekki lengi að sjá þetta út. En þetta er 237 Fjölnir SU-57. Þarna er hann á línuveiðum astan við Skrúð í janúar 2010. Strákarnir á Fjölni mynduðu strákana okkar á leiðinni yfir í heimsókn í haugasjó.


©GStV jan 2010

©GStV jan 2010

©GStV jan 2010

©GStV jan 2010

HÉRNA má sjá myndband þeirra Fjölnismanna.


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.02.2010 07:40:07 / pardus

Hver á þennan topp ?

Ein svona í morgun sárið til gamans :)


©GStV jan 2010


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2010 00:07:46 / pardus

2497 Gunnar Leós ÍS-112

2497 Gunnar Leós ÍS-112 á línu út af Ísafjarðardjúpi núna í janúar.


2497 Gunnar Leós ÍS-112 ©GStV jan 2010


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2010 02:53:23 / pardus

Varðskipið Óðinn 50 ára.

Þann 27 janúar síðastliðinn voru liðinn 50 ár frá komu varðskipsinns til Íslands. Af því tilefni var haldið smá hóf í sjóminjasafninu og um borð í öldungnum sem nú er orðið að safni. Ég átti þarna skemmtilega kvöldstund með mörgum mætum mönnum sem siglt hafa á þessu skipi í gegnum árin. Það er ekki laust við að margar og góðar mynningar hafi komið fram í hugan þegar ég gekk um skipið og skoðaði það. En ég hef ekki skoðað hann frá því að hann var gerður að safni. Ég byrjaði á honum 1982 og fór minn síðasta túr þar 2005. Það er reyndar ekki samfeldur tími á skipinu því að ég er búinn að vera á öðrum skipum á milli um lengri eða skemmri tíma eftir 1990 en ég átti eftir að fara reglulega á henn eftir það. Það var líka gaman að sjá í samantekt sem gerð hefur verið á öllum þeim sem lögskráðir hafa verið á þessu skipi að ég var nr. 31 af þeim sem lengst hafa starfað á skipinu af öllum þeim fjölda sem þar hefur siglt í gegnum öll þessi ár.


Þessi mynd er tekin sennilega 1983. Ekki man ég hver myndaði mig þarna.

Þessi er svo tekin af mér í umræddu hófi um daginn. Ljósmyndari Rafn Sigurðsson


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.01.2010 10:11:31 / pardus

1440 Valur ÍS-20 og 1403 Halldór Sigurðsson ÍS-14

Tók þessar myndir núna í janúar af Val og Halldóri Sigurðsyni í Ísafjarðardjúpi. En þeir eru að sækja fisk fyrir þorskeldi HG.


1440 Valur ÍS-20 og 1403 Halldór Sigurðsson ÍS-14 ©GStV jan 2010

1403 Halldór Sigurðsson ÍS-14 ©GStV jan 2010

1403 Halldór Sigurðsson ÍS-14 undir Stigahlíð  ©GStV jan 2010


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2010 21:52:01 / pardus

Skip og bátar 2009

Jæja þá er ég búinn að setja allflestar myndirnar af þeim skipum og bátum sem ég náði á árinu 2009 í myndasafn. Eitthvað vantar samt upp á að þeir séu allir þarna. Það segir sig sjálft að sumir eru tví og þríteknir yfir árið, En ég reyni að velja bara eina mynd úr. Ég er bara nokkuð sáttur sjálfur með skotin á árinu en mér finnst ég hafa náð nokkrum góðum skotum.

Þetta er eitt af þeim skotum sem ég er bara nokkuð sáttur við. Þessi er tekin um hádegisbil 31. janúar 2009. ©GStV

Gaman væri ef einhverjir nenntu að velja einhverja eina mynd sem þeim finnst best af þessu og setja hérna í athugasemdir :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.01.2010 20:27:19 / pardus

2435 Björg Hauks ÍS-33

2435 Björg Hauks ÍS-33 á heimleið af miðunum um daginn eftir ágætis línuróður skammt undan Ísafjarðardjúpi.

©GStV jan 2010

©GStV jan 2010

©GStV jan 2010
Það er greinilega orðinn mikil yfirferð hjá mönnum á síðunum núna þar sem engin má orðið vera að því að skilja eftir sig nokkurn skapaðan hlut. Skiljanlegt kannski þar sem síðurnar eru orðanar svona margar eins og raun ber vitni.


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.01.2010 00:56:26 / pardus

2158 Tjaldur SH-270

Hér hefur maður ekkert getað sett inn í svolítin tíma vegna einhvers og einhverja vandamála. Ekki það að myndefnið skorti, en það er af nógu að taka í þeim efnum.
Mikið rosalega getur maður stundum verið heppinn með veður,birtu og mótíf til að mynda. Náði frábærum myndum af Tjaldi SH um daginn í alveg ótrúlega fallegu veðri. Ég hélt um tíma að það væri komið vor, en ekki miður janúar.


2158 Tjaldur SH-270 á línu einhverstaðar úti af vestfjörðum ©GStV jan 2010

2158 Tjaldur SH-270 á línu einhverstaðar úti af vestfjörðum ©GStV jan 2010

2158 Tjaldur SH-270 á línu einhverstaðar úti af vestfjörðum ©GStV jan 2010

2158 Tjaldur SH-270 á línu einhverstaðar úti af vestfjörðum ©GStV jan 2010


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.01.2010 21:26:14 / pardus

1937 Björgvin EA-311

Ég ætla að setja hérna inn nokkrar myndir sem ég tók núna í janúar þegar við fórum í heimsókn um borð í aflaskipið Björgvin EA-311. Stífur kaldi var á miðunum. Þá er bara betra að fara í myrkrinu og þá sér maður hvort sem er ekki neitt og getur bara einbeitt sér að því sem á að gera. Á þessu skipi eru stór-skipa-bloggararnir Brynjar Arnarsson sem er með síðu HÉRNA og Sigurður Davíðsson sem er mað síðu HÉRNA . Þetta var það skársta sem kom út úr þessum tökum hjá mér. Það var það dymt yfir að ég var búinn að strippa allt niður í low profile og kominn með ISO-ið upp úr öllu og Av-ið líka. Kær kveðja á ykkur félagar og ég hlakka til að sjá ykkar skot.


Þessi er nú tekinn að eins fyrr um daginn. ©GStV jan 2010

Þessi líka. ©GStV jan 2010

Hérna er farið að draga til tíðinda. Móttökunefndin í portinu. ©GStV jan 2010

Hann lyftir sér upp, með bátin á síðunni. ©GStV jan 2010

Og hann hlammar sér niður. ©GStV jan 2010

Allt gekk eins og smurt og Björgvin EA hélt áfram sína leið. ©GStV jan 2010


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2010 23:25:03 / pardus

Varðskipið Ægir og TF-LÍF æfa notkun á HIFR

Ég ákvað að ögra sjálfum mér aðeins um daginn á einni næturæfingunni með þyrlunni okkar. Mig langaði til að athuga hvort ég gæti tekið myndir í myrkri af hlut sem er á mikilli hreyfingu, frá stað sem líka er á mikilli hreyfingu án þess að nota flass. Þetta eru svo sem engin meistara stykki en það sést þó alveg hvað verið er að gera.

Undanfarið höfum við og TF-LÍF æft notkun þyrlueldsneytis búnaðar (HIFR), en með notkun hans er mögulegt fyrir okkur að gefa þyrlum á flugi eldsneyti. Slíkt er afar mikilvægt þegar verið er í aðgerðum og langt er fyrir þyrlu að sækja eldsneyti. Um borð í varðskipinu geta verið 2500 lítrar af eldsneyti.

Áfyllingin gengur þannig fyrir sig;
Þyrla tilkynnir um að hún þurfi á eldsneyti að halda frá skipinu. Áhöfn skipsins gerir klárt fyrir eldsneytis afhendingu með því að : A) slangan er tekin upp á þyrluþilfar og lögð niður í buktum og síðan tengd við bakrennsil til eldsneytistanks. B) dælustöðin gangsett og eldsneytinu hringrásað í 15 mín. C) nú er allt tilbúið til að taka á móti þyrlunni · Þyrlan kemur yfir skipið á bakborða og halda bæði þyrla og skip stefnu upp í vind. · Þyrlan slakar niður spilvírnum og slönguendinn ásamt jarðbindivír er tengdur við og hífður upp í þyrluna. · Spilmaður tengir nú jarðbindivírinn við þar til gerðan punkt í þyrlunni og slönguna við áfyllistút á þyrlunni, gefur síðan merki til dekkstjóra skipsins að hefja dælingu. · Þegar nægt magn er komið á þyrluna gefur spilmaður merki til dekkstjóra um að stöðva dælingu og aftengir síðan áfylli stútin og jarðbindivírinn og slakar honum niður á þilfar skipsins. · Slangan og jarðbindivírinn aftengd frá spilvírnum og aðgerðinni lokið.

Þessar myndir sem teknar voru á æfingunni sýnaeftirfarandi. Líf kom með öldumælidufl og varahluti fyrir veðurstöð sem flutt var til okkar fyrir æfingu. Eftir eldsneytisáfyllingaræfinguna var tekin hefðbundin björgunaræfing, björgun manna af skipi, úr björgunarbát og úr sjó. Þá treysti ég mér ekki lengur til að mynda meira :o)


Rafn Sigurðsson og Gunnar Kristjánsson hásetar en þeir voru brunaverðir á æfingunni.
©GStV jan 2010

Búið að taka á móti tengilínunni. ©GStV jan 2010

Öldumæliduflið á leið niður. ©GStV jan 2010

Frá vinstri Linda Ólafsdóttir, Andri Már Johnsen og Baldur Árnason hásetar með öldumæliduflið. ©GStV jan 2010

Óskar Á Skúlason háseti festir spilvír þyrlunar í áfyllingarslönguna. Birgir H. Björnsson yfirstýrimaður fylgist með. ©GStV jan 2010

Áhöfnin á Líf hífir slönguna til sín. ©GStV jan 2010

Slangan að verða klár til tengingar við þyrluna. ©GStV jan 2010

Teitur Gunnarsson 3. stýrimaður sér um dælinguna frá skipinu með fjarstýringu.
©GStV jan 2010

Slangan tengd og allt klárt til að dæla. ©GStV jan 2010


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2010 12:56:12 / pardus

Kveðja til Sæmundar á Hrönn ÍS

Þakka Sæmundi á Hrönn ÍS kveðjurnar. Þar sem ég get ekki svarað þeim öðruvísi en hérna þá vona ég að hann sái þetta. Ég náði ekki að mynda Hrönn í þetta skipti þannig að ég sendi þeim bara þessa í staðinn sem tekin var á svipuðum tíma. Gaman væri svo ef glöggir menn þekktu bátinn sem sjá má á myndinni.

Fögur fjallasýn heim. ©GStV jan 2010


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.01.2010 00:51:44 / pardus

Skipt um bakgrunn á mynd í Photoshop.


Við lendum eflaust allir í því þegar við erum að mynda skip í erfiðri birtu, sérstaklega skip sem eru með ljósa yfirbyggingu og dökkan skrokk, að ljósmæla dökkan skrokkinn, þá verður bakgrunnurinn og yfirbyggingin jafnvel allur brenndur út eins og kallað er. Einnig getur maður lent í því að ljósmæla yfirbygginguna sem oftast er fyrir miðju og ljós á litin. Þá vill oft henda að liturinn á skrokknum verður mun dekkri á myndinni, heldur en hann er í raun, sérstaklega ef við erum með stillingarnar á vélinni á einhverskonar sjálfvirkni(auto eða program). Mér hefur fundist dökk rauðir og grænir litir eina erfiðastir í þessu. Þetta er oft auðvelt að laga með ýmsum tólum í Photoshop. Ég er í æ ríkari mæli farin að hafa  vélina mína stillta á one shot, í stað A1 servo. Þá get ég ljósmælt og tekið fókusinn þar sem ég vil og haldið takkanum hálfa leið inni og fært vélina í þá stöðu sem ég ætla að taka og smellt svo af. Þetta hefur verið að gefa nokkuð góða raun hjá mér. Þá get ég ráðið sjálfur hvað ég ætla að leggja áherslu á, á myndinni. Oft er það bakgrunnur eða eitthvað annað sem ég vil hafa rétt lýst, svo lagar maður bara rest í einhverju forriti. Ég nota Photoshop CS2 og CS4. Ég tek oft prufuskot og skoða það áður en ég tek svo myndina sem ég ætla mér að taka og get þá lagað stillingar til samræmis við það. Þetta á auðvitað bara við ef maður hefur tíma til þess, að sjálfsögðu tekur maður frekar mynd, heldur en að missa af skoti út af einhverju svona veseni :o)

Ég var beðinn um að fara í gegnum það hvernig skipt er um bakgrunn ef hann brennur út hjá manni og maður vill reyna að laga það eitthvað. Þar sem ég er nú ekki með næga kunnáttu á Photoshop til að sýna þetta, þá vona ég að mér fyrirgefist þetta hnoð. En ég reyni það samt. Ég geri þetta svona, ef með þarf. Þetta er svolítið mikil vinna ef vanda á til verka. Þetta krefst reyndar svolítillar kunnáttu í Photoshop.


Mynd 1

Myndin sem ég valdi er af Jóni á Hofi sem ég tók einhvertíma í fyrra, þarna var sólin að gera mér lífið leitt og varð þess valdandi að þarna á þessum stað varð allt yfirlýst. Best er auðvitað að vanda til verka strax í myndatökuni svo að maður þurfi ekki að standa í svona veseni :o)

Ég byrja á að velja Magic eraser tool Passa verður að stillingarnar séu ekki mjög háar T.d. Tolerance ca 25% en Opacity má vera 100%. Þó þarf alltaf að fara varlega þegar hvíti bakgrunnurinn er hreinsaður burt. Þetta er mesta vinnan í öllu ferlinu. Gott er að stækka myndina eins mikið upp og menn treysta sér til á meðan verið er að hreinsa frá smáatriðunum á skipinu. Maður getur kannski líka þurft að skipta yfir á Eraser tool og vinna eitthvað handvirkt.


Mynd 2
Hérna er búið að hreinsa gróflega allan hvíta bakgrunninn. Hægt er að hreinsa restina ef einhver er á síðari stigum.


Mynd 3
Þetta er myndin sem ég valdi að nota bakgrunninn af, en hún var tekinn aðeins fyrr þegar sólin hafði ekki sömu truflandi áhrifin. Best er að nota mynd sem er tekin með sömu brennivídd eða svipaðri.


Mynd 4
Gott er að nota clon tool til að hreinsa öll loftnet og eitt og annað sem stendur upp af skipinu og gæti truflað endanlegu myndina. Ég tek líka stundum myndir af sjóndeildarhringnum og á orðið smá safn af myndum til að nota í svona skipti sem ég þarf þá ekkert að laga sérstaklega.


Mynd 5
Þá er komið að því að færa hreinsuðu myndina yfir á bakgrunnsmyndina. Til þess notum við Move tool sem er við ör 1. Næst förum við yfir skipið og drögum það yfir á bakgrunnsmyndina ör 2.


Mynd 6
Næst stillum við skipið af eins og við viljum hafa það á myndinni með move tool.


Mynd 7
Næst notum við crop tool til þess að skera utan af myndinni og laga það sem maður vill laga. Á þessum tíma punkti getur maður hreinsað út ef eitthvað var eftir af brunna bakgrunninum. Þá fer maður í Layers og velur þann efri hægra megin í forritinu og vinnur í honum. Þegar maður er orðinn sáttur við útkomuna fer maður í Layer uppi á tóla stikunni og velur þar Flatten Image. Þá er sem sagt búið að fella alla layera saman í eina mynd.


Mynd 8
Svo er bara að vista í jpg eða einhverju öðru eftir því sem menn eru vanir að nota. Þá eru menn komnir með mynd sem lítur svona út.

Ég vona svo að þetta gagnist einhverjum :o)


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.01.2010 00:10:54 / pardus

1856 Rifsari SH-70 dansar fyrir ljósmyndarann

Það er alltaf gaman þegar vel veiðist. En það gerði ég fyrir skömmu síðan þegar ég náði Rifsara að kasta dragnót. Smá ylgja var og því dansaði hann svona skemmtilega fyrir mig á meðan ég myndaði hann. Ég set hérna inn nokkrar myndir af honum fyrir vin minn Alfons Finnsson stórljósmyndara á Ólafsvík og víðar. Ég veit að honum er svolítið annt um þennan bát.


Belgirnir farnir og tógið farið að renna út.

Ágjöf á meðan

Liftir sér á báru

Fyrsta begja

Önnur begja

Á móti sjó og vind

Gefur á bátinn

Dýfir sér í sæ

Síðasta begjan

Farið að styttast í belgina.

Rétt að koma að þeim

Komin að þeim og fjörið búið

Glæsilegur bátur. Serían ©GSTV jan 2010


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.01.2010 22:35:39 / pardus

7427 Diddi GK-56

Diddi GK á línuveiðum í janúar 2010


©GStV jan ´10

©GStV jan ´10


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 36
Íslenski fáninn
Íslenski fáninn
Heimsóknir
Í dag:  256  Alls: 270159
Heims-sóknir
free counters
Skipperinn

"" 
Ég heiti Guðmundur St.
Valdimarsson. fæddur
3. október 1966.
Ég starfa sem bátsmaður
á varðskipinu Ægi.
Ég byrjaði til sjós í apríl
1982 og hef verið á sjó síðan.
Myndavélin er búinn að vera
hluti af mér síðan 1978.
Ég er kvæntur
Hjördísi Kvaran og
við eigum saman þrjár
dætur , Guðrúnu Lilju,
Þuríði Kvaran og
Jónu Margréti.

Hafa samband
Heima : 5668473 GSM : 8998473 Vinna : GSM 8402146 NMT : 8521683 Heima : gstv@simnet.is Vinna : gudmundurst@lhg.is
Leitarbox

Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
Bæjarmerki Mos
Akranes
http://img520.imageshack.us/img520/4835/fddur6do.jpg""
Ísafjörður
http://img126.imageshack.us/img126/449/saf8ut.jpg
Skeljatangi
http://img432.imageshack.us/img432/2289/heima6xl.jpg""